Sjúkrahúsprestar.
Sjúkrahúsprestar og sjúkrahúsdjáknar starfa á Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi og leitast við að hlúa að andlegri heilsu og velferð manneskjunnar.
Þjónustan byggir á heildrænni nálgun og felur í sér stuðning og samfylgd á ákveðnu tímabili í lífi fólks, þar sem verið er að takast á við sjúkdóma, ástvinamissi og áföll.
Meginstarfssvið sjúkrahúspresta- og djákna felur í sér sálgæslu, helgihald og fræðslu sem snýr að sjúklingum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki.
Þjóðkirkjan styður við þjónustu spítalans m.a. með stöðugildi sjúkrahúsprests Þjóðkirkjunnar. Starfsvettvangur hans er við líknardeild Landspítala í Kópavogi og líknarráðgjafateymi spítalans. Sjúkrahúsprestur Þjóðkirkjunnar starfar innan deildar sjúkrahúspresta- og djákna á Landspítala.
Sjúkrahúsprestar á Landspítala eru:
Sr. Ása Björk Ólafsdóttir, asabo(hjá)landspitali.is
Sr. Eysteinn Orri Gunnarsson, eysteinn(hjá)landspitali.is
Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sjúkrahúsprestur Þjóðkirkjunnar, gudlauga(hjá)landspitali.is
Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, deildarstjóri sálgæslu sjúkrahúspresta- og djákna, gmatt(hjá)landspitali.is
Sr. Hjördís Perla Rafnsdóttir, hjordispr(hjá)landspitali.is
Sr. Ingólfur Hartvigsson, ingolfuh(hjá)landspitali.is
Sr. Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir, sveinbjp(hjá)landspitali.is
Sr. Þorgeir Albert Elíesersson, thoreira(hjá)landspitali.is
Að auki starfa á Landspítalanum tveir prestar í handleiðsluteymi spítalans:
Sr. Díana Ósk Óskarsdóttir diana(hjá)landspitali.is
Sr. Sigrún Óskarsdóttir sigrunmos(hjá)landspitali.is


