Prestur heyrnarlausra. 

Kirkja heyrnarlausra hefur verið starfandi frá árinu 1981 og hefur skapað sér stóran sess í samfélagi heyrnarlausra hér á landi. Söfnuðurinn er ekki bundinn við ákveðna sókn heldur nær yfir allt landið þar sem táknmálstalandi einstaklingar búa.

Prestur heyrnarlausra sér um kirkjulegar athafnir fyrir heyrnarlausa og fjölskyldur þeirra. Messað er í Grensáskirkju að jafnaði einu sinni í mánuði og syngur kór heyrnarlausra á táknmáli í messunum. Eftir messu er boðið upp á messukaffi og notalegt spjall.

Prestur heyrnarlausra hefur aðsetur í Grensáskirkju þar sem hann/hún hefur skrifstofu og aðstöðu til þess að taka á móti fólki. Þá fer prestur heyrnarlausra einnig reglulega í heimsóknir á sjúkrastofnanir, hjúkrunarheimili og heim til þeirra sem þurfa á slíkri þjónustu að halda.

Prestur heyrnarlausra vinnur einnig náið með Félagi heyrnarlausra og tekur þátt í samverustundum eldri heyrnarlausra sem fara fram vikulega á hjúkrunarheimilinu Mörk. Mikil ánægja er með þessar stundir og aðbúnaður í Mörkinni er allur til fyrirmyndar, fallegt umhverfi og heilmikið líf.

Prestur heyrnarlausra er sr. Kristín Pálsdóttir, kristin_pals(hja)hotmail.com