Prestur fatlaðra.

Prestur fatlaðra var vígður árið 1990 og hefur síðan verið eitt prestsembætta Þjóðkirkjunnar. Prestur fatlaðra þjónar fötluðu fólki um allt land.

Sérstök áhersla er lögð á að þjóna fólki með þroskahömlun og aðstandendum þeirra. Markmiðið með þjónustu þjóðkirkjunnar er að greiða götu fatlaðs fólks að kirkjunni svo að öll geti nýtt sér þjónustu kirkjunnar á sínum forsendum og tekið þátt í starfi hennar.

Helstu starfsþættir eru: sálgæsla, sorgarvinna, fermingarfræðsla, heimsóknir á heimili og vinnustaði fatlaðra, embættisverk og helgistundir.

Eins er hluti starfans að kynna málefni fatlaðra sem víðast innan kirkjunnar og vera í góðum tengslum við hin ýmsu félagasamtök, stofnanir og fólk sem á einhvern hátt tengist málefnum fatlaðra.

Prestur fatlaðra sr. Guðný Hallgrímsdóttir er með starfsaðstöðu í Grensáskirkju.

gudhall(hjá)mi.is