Fangaprestur.
 
Fangaprestur hefur starfað á vegum þjóðkirkjunnar frá árinu 1970.
Fangaprestur veitir þjónustu þeim sem eru í afplánun hverju sinni og sinnir auk þess eftirfylgd.
Fangaprestur fer reglulega í öll fangelsin og starfar mest við sálgæslu og helgihald, kyrrðarstundir og guðsþjónustur. Auk þess sem starfar fangaprestur með félagasamtökum, hreyfingum og stofnunum þeim er láta sig varða hag fólks í afplánun. Þá situr fangaprestur í húsnefnd Verndar.
 
Fangelsin á Ísland eru fjögur, Litla-Hraun, fangelsið að Sogni í Ölfusi, fangelsið á Hólmsheiði og Kvíabryggja á Snæfellsnesi.
 
Fangaprestur er sr. Hjalti Jón Sverrisson hjalti.jon.sverrisson(hja)kirkjan.is