Prestar innflytjenda.
Prestar innflytjenda eru í þjónustu við innflytjendur og flóttafólk á Íslandi.
Þeir boða fagnaðarerindi Jesú Krists meðal innflytjenda og flóttafólks og veita einnig praktíska aðstoð eftir þörfum, sem felur í sér sálgæslu, biblíufræðslu, skírnarfræðslu og svo framvegis.
Prestar innflytjenda eru tilbúnir að veita öllum söfnuðum Þjóðkirkjunnar aðstoð hvað varðar innflytjendur og flóttafólk svo að sérhver söfnuður skapi sér tækifæri til að taka á móti fólki af erlendum uppruna og auðga fjölbreytleika í safnaðarlífi.
Aðalstarfsvettvangur presta innflytjenda er Alþjóðlegi söfnuðurinn, sem hefur aðsetur í Breiðholtskirkju og er helgihald á ensku alla sunnudaga kl. 14. Bænastundir utan Breiðholtskirkju gætu verið haldnar reglulega og þá auglýstar sérstaklega.
Prestar innflytjenda og flóttafólks eru:
Sr. Árni Þór Þórsson
arni.thor.thorsson(hja)kirkjan.is
626-4800
Sr. Toshiki Toma
tosiki.toma(hja)kirkjan.is
779-7123


