Prófastsdæmið

Reykjavíkurprófastsdæmi vestra nær frá Reykjanesbraut vestur á Seltjarnarnes og samanstendur af sjö prestaköllum sem alls telja tíu sóknir.
Prestakall nefnist það landsvæði sem prestur, djákni eða prestar, djáknar þjóna. Það getur náð yfir eina eða fleiri sóknir en sóknin er grunneining kirkjunnar og hefur hver sókn sína sóknarnefnd. Sá prestur sem ber ábyrgð á prestakalli, samstarfseiningu um samstarf presta og djákna í prestakallinu, nefnist sóknarprestur.

Prestaköll og sóknir í RPV eru Seltjarnarnesprestakall, Nesprestakall, Dómkirkjuprestakall, Hallgrímsprestakall, Háteigsprestakall, Laugardalsprestakall (Laugarnessókn, Ássókn og Langholtssókn) og Fossvogsprestakall (Bústaðasókn og Grensássókn)

Auk presta og staðbundinna safnaða tilheyra prófastsdæminu prestar sem mynda Sérþjónustuteymi Þjóðkirkjunnar sem sinnir óstaðbundnum söfnuðum fólks sem vegna aðstæðna geta ekki notið hefðbundinnar kirkjulegrar þjónustu. Í teyminu eru sex prestar: Prestur fatlaðra, prestur fanga, prestur heynarlausra og tveir prestar innflytjenda og flóttafólks.

Starfsmenn prófastsdæmisins eru auk prófasts tveir héraðsprestar, sem sinna afleysingum og öðrum verkefnum. 

Í prófastsdæminu starfar einn djákni á vegum safnaðar.

Auk þessa starfa prestar og djáknar á helstu sjúkrastofnunum landsins sem staðsettar eru í prófastsdæminu. Öll eru þau starfsmenn viðkomandi stofnana.

Prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra með starfsstöð í Langholtskirkju:
Guðbjörg Jóhannesdóttir
Sími: 861 7918
Tölvupóstur: gudbjorgj [hjá] kirkjan.is

Héraðsprestar með starfsstöð í Langholtskirkju:
Jón Ásgeir Sigurvinsson
Sími: 868 9158
Tölvupóstur: jon.asgeir.sigurvinsson [hjá] kirkjan.is

Sunna Dóra Möller
Sími: 821 2072
Tölvupóstur: sunnamo [hjá] gmail.com